My Store
Valey Countryside Escape - Blöndalshús
Valey Countryside Escape - Blöndalshús
Velkomin í Valey – Country Escape (Blöndalshús)
Blöndalshús er staðsett á sveitabænum Lækjarhvammi í Húnaþingi vestra í friðsælu sveitaumhverfi.
Húsið rúmar allt að fjóra gesti, er með einu svefnherbergi með hjónarúmi frá https://nattururum.is/ og svefnsófa í opnu stofurými. Athugið að þetta rými er ekki með gluggatjöldum, sem þýðir bjartar sumarnætur en við bjóðum upp á svefngrímur. Það er Wi-Fi í húsinu og fullbúið eldhús með ísskáp, helluborði, vínkæli, bakaraofni og uppþvottavél.
Við húsið er u.þ.b. 100 fm pallur þar sem hægt er að slaka á í heita pottinum, kæla sig niður í köldum potti eða skola af sér í útisturtunni.
Hvort sem þú ert að skipuleggja rómantíska ferð eða rólegt frí með vinum, þá býður Valey upp á notalega og ósvikna dvöl í íslenskri sveit. Hver veit nema þú sjáir bóndann á næsta bæ úti á nærbuxunum.
Húsið á sér einnig áhugaverða sögu. Íslenska nafnið Blöndalshús kemur frá því að húsið stóð upphaflega á Hvammstanga og var eitt sinn heimili Blöndals-fjölskyldunnar. Meðal þeirra var Gunnlaugur Blöndal, þekktur listamaður.
Í dag prýða tvö listaverk eftir hann, ásamt ljósmynd af honum, veggi Blöndalshúss sem setja persónulegan og menningarlegan blæ á húsið.
