Skip to product information
1 of 15

Valey Experience

Hestarnir okkar

Hestarnir okkar

Við ræktum hesta og kennum þá við bæinn Grafarkot í Húnaþingi vestra. Foreldrar Fanneyjar Indriði og Herdís hafa ræktað hesta þar í mörg ár. Markmið okkar er að rækta geðgóð og falleg hross með úrvals gangtegundir. Umfram allt leggjum við mikla áherslu á að ala upp heilbrigða og hamingjusama hesta.

Fanney er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, hefur haldið fjölmörg barnanámskeið í gegnum tíðina og boðið upp á almenna reiðkennslu. Hún á tvö börn, Herdísi Erlu og Ými Andra, sem eru einnig dugleg að þjálfa sína hesta og keppa í hestaíþróttum. 

Á sumrin njótum við þess einnig að fara í hestaferðir með vinum okkar ásamt allskonar öðrum bústörfum. 

View full details